Mastermind.isInnskrá / mínir hópar

Settu þér markmið
Finndu rétta fólkið
And fucking go for it.

Vilbert Gústafsson

Ekki bíða eftir fullkominni áætlun. Hún kemur aldrei.

Settu þér markmið sem þú finnur fyrir. Eitthvað sem tengist hjartanu, ekki bara hausnum.

Hugsaðu 80/20.

Veldu síðan aðgerðir sem hafa mestu áhrifin.

Lærðu af því sem gerist. Aðlagaðu þig. Haltu áfram.

Lítill, lokaður hópur sem deilir reynslu, fagnar sigrum og hjálpar þegar eitthvað stendur í vegi.

Sparkaðu niður hurðum. Hringdu aftur. Sendu á tengslanetið. Reyndu aftur.

Mistök eru ekki til. Allt er lærdómur.

ChatGPT-aðgangur · engin sjálfvirk gjaldfærsla

01 · BYRJIÐ SAMAN

Stofnaðu þinn hóp.

Virkjaðu kynningarkóða fyrir allan hópinn og bjóddu allt að fimm öðrum. Þú stjórnar aðild og velur fundarstjóra.

02 · AFMARKIÐ NÆSTA SKREF

Eitt markmið á mann.

Hver skráir niðurstöðuna sem hann vill ná og eina til þrjár aðgerðir. Allir sjá stöðuna; hver uppfærir sitt kort.

03 · HITTIST MÁNAÐARLEGA

Farið yfir og haldið áfram.

Fagnið sigrum, ræðið lærdóm og hjálpið hvert öðru að ákveða næstu 30 daga. Fyrri mánuðir og fundir haldast í sögunni.

Ykkar samtal. Ykkar hópur.

Gögn eru aðeins aðgengileg innan hópsins. Stjórnandi og valinn fundarstjóri geta aðstoðað við uppfærslur á kortum. Þú getur hreinsað þitt efni án þess að missa aðild.

Ef þú vilt inn og átt það skilið, þá veistu hvar þú nærð í mig.

Innskráning með ChatGPT

Til að taka þátt í hópi á Mastermind.is þarftu ChatGPT-aðgang. Þegar þú smellir á „Innskrá / mínir hópar“ ferðu í innskráningu hjá OpenAI og kemur síðan aftur hingað. Ef þú átt ekki aðgang geturðu stofnað hann í innskráningarferlinu.

Veldu ChatGPT-aðgang með sama netfangi og boðið í hópinn er sent á. Innskráningin ein veitir ekki aðgang að lokuðum hópi; þú þarft einnig að samþykkja boð í hann eða stofna eigin hóp með gildum kóða.